Á forsíðu
Dagbók    Ferilskrá    Myndir    Félagsstörf    Skrár    
Senda Sögu Jóns Póst
 

Saga G Jónsdóttir - Leikkona
byrjað að starfa með LA árið 1964 og var í hópi fyrstu fastráðnu leikara LA, árið 1973 . Nokkrum árum síðar hvarf hún til starfa hjá öðrum leikhúsum sunnan heiða. Hún hefur komið við sögu hjá flestum miðlum sem sinna leiklist. Hún á að baki tugi hlutverka hjá LA, LR, Þjóðleikhúsinu, sjónvarpi, útvarpi og í kvikmyndum. Meðal hlutverka sem hún hefur leikið má nefna kvenhlutverkin í BarPari í Borgarleikhúsinu, Dans á rósum í Þjóðleikhúsinu og Gógó í kvikmyndinni Djöflaeyjunni,konu í Dansinum ofl.  Hún hefur einnig starfað með mörgum leikhópum og rak sinn eigin leikhóp, Revíuleikhúsið, um árabil. Saga vann hjá Stöð 2 um nokkurra ára skeið við að talsetja teiknimyndir , stjórna þáttum og semja barnaefni. Hún hefur einnig kennt leiklist á fjölmörgum námskeiðum á Akureyri, Reykjavík og víða um land. Má nefna að Leikklúbburinn Saga var stofnaður  árið 1978 eftir slíkt námskeið og heitir í höfuðið á leikkonunni. Hún hefur í gegnum árin skemmt víða um land, ýmist ein eða með fleirum, á árshátíðum og öðrum samkomum, má nefna Þórskabarett, Stjúpsystur ofl. Þá hefur Saga starfað að markaðs-og sölumálum hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og LA. Árið 1999 kom hún aftur norður og starfaði hjá LA. sem leikari og markaðs- og sölustjóri til 2004. Saga hefur leikstýrt fjölda sýninga bæði heima og erlendis en hún hefur sett upp sýningar bæði í Lúxemburg og í Færeyjum, meðal sýninga eru Þrek og tár, Káinn, Gleðigjafarnir, Klerkar í klípu, Stalín er ekki hér, Meyjarskemman, Karlinn í kassanum, Litli Kláus og stóri Kláus, Stundarfriður, Sambúðarverkir og Primadonnurnar sem hún þýddi einnig. Hjá LA. hefur hún meðal annarra hlutverka leikið í Glerdýrunum, Afbragð annarra kvenna, Kristnihaldi undir jökli, ´Dúfnaveislunni, Skækjunni Rósu, Ingu í Blessuðu barnaláni, Konuna í Leyndarmáli Rósanna, Draumalandinu , Oliver Twist , Dýrunum í Hálsaskógi ofl. ofl.

 

» Dagbók

30.03.2009  
daglegt lif

JÆja þá eru komnar 12 uppseldar sýningar á STundum og stundum ekki og er mikið fjör á Melum. Á fimmtudagskvöldið síðasta var sýning til minningar um Hólmfríði mömmu Benna sem leikur aðalhlutverkið og rann ágóðinn af sýningunni til Krabbameinsfélags Akureyrar 250.000,- kr. Glæsilegt hjá Lei...  » Nánar


» 30.03.2009 - gagnrýni Stundum og stundum ekki

» 11.03.2009 - frumsýning gekk frábærlega


» Fleiri dagbókarfærslur


» Myndir úr verkum


Í sumarskapi


Góðverkin kalla



Saga Geirdal Jónssdóttir | saga@sagajons.is |