Stundum og stundum ekki 2009
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Stundum og stundum ekki eftir Arnold og Bach þann
5. mars nk. Gamanleikrit í ætt við Fló á skinni og álíka verk. Þessir höfundar
sömdu mikið af försum , m.a. Karlinn í kassanum, Spanskfluguna, Húrra krakki ofl
. Verk þeirra hafa verið vinsæl hér á landi allt frá árinu 1926! Leikmynd gerir
Hallmundur Kristinsson , ljósahönnun Ingvar Björnsson og Pétur Skarphéðinsson,
Hljóðmynd gerir Kristján EDelstein, yfirsmiður Guðmundur Óskar Guðmundsson. Saumakonur
eru Svana og Sigga, hvíslarar Valur DAníelsson og Aðalsteinn Hreinsson. Ég setti
smátónlist og dans inní sýninguna auk þess að lagfæra þýðinguna án þess að staðfæra
eða færa til í tíma einsog er allsráðandi hér núna.
Leikarar eru fimmtán talsins : Bernharð Arnarson, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir,
Ívar Örn Björnsson, Gunnlaugur Sverrisson, Sesselja Ingólfsdóttir, Guðmundur Steindórsson,
Helga Jónsdóttir, Halla Halldórsdóttir, Jón...Stefanía E. Hallbjörnsdóttir, Stefán
Jónsson, Tryggvi Gunnarsson, Sigurður Sverrison, Þóroddur Sveinsson.
Sunna D. Róbersdóttir
Sýningar urðu 25 og var sýningarmet og aðsóknarmet rúml. 2200 áhorf. Dómar alveg
frábærir |