Þetta er ótrúlegt hvað ég er léleg við að skrifa í dagbókina. Getur það verið
að ég hafi ekkert skrifað síðan 2007??? Jæja verð að reyna að bæta úr því. VAr
í Færeyjum í 9 vikur og setti upp Emil í Lönnebergi eftir Astrid Lindgren. Var
mikil vinna og erfið á köflum. Vinnuaðstaðan var slæm, gömul slökkvistöð lítil
pláss og ömurlegt. Ég byrjaði á að þrífa klósett og eldhús!! Þetta var stór sýning
20 leikarar og 4 manna hljómsveit. Sjónleikafélag Klaksvíkur missti húsnæðið sitt
"Atlantis" þess vegna voru þessi ósköp og þau urðu að sýna í Fuglafirði. Þannig
að síðustu fjórar vikurnar eða svo keyrðum við með rútu í rúml. hálftíma æfðum
svo í 4 klt. og svo heim aftur! Það vita allir sem hafa tekið þátt í svona starfi
hvað þetta er mikil viðbót við allt hitt. En sýningin endaði með að vera bæði
falleg og skemmtileg held ég. Tónlistin mjög fín og hljómsveitin flott. Leikmyndin
og búningar hjá Edward Fuglö aldeilis frábær. Og svo gengur sýningin og gengur,
þau leika 7 sinnum í viku og allt uppselt!! Þau hafa ekki Menningarhúsið í Fuglafirði
nema til 19. nóvember svo þau eru að keppast við.
Stendur til að hafa námskeið í framsögn og tjáningu í Laxdalshúsi en veit ekki
hvort verður aðsókn á þessum síðustu og verstu tímum.
Til baka |