Saga G Jónsdóttir - Leikkona
byrjað að starfa með LA árið 1964 og var í hópi fyrstu fastráðnu leikara LA,
árið 1973 . Nokkrum árum síðar hvarf hún til starfa hjá öðrum leikhúsum en bættist
aftur í hóp fastráðinna leikara hjá LA fyrir fjórum árum. Hún hefur komið við
sögu hjá flestum miðlum sem sinna leiklist. Hún á að baki tugi hlutverka hjá LA,
LR, Þjóðleikhúsinu, sjónvarpi, útvarpi og í kvikmyndum. Meðal hlutverka sem hún
hefur leikið má nefna kvenhlutverkin í BarPari í Borgarleikhúsinu, Dans á rósum
í Þjóðleikhúsin og Gógó í kvikmyndinni Djöflaeyjunni. Hún hefur einnig starfað
með mörgum leikhópum og rak sinn eigin leikhóp, Revíuleikhúsið, um árabil. Saga
vann hjá Stöð 2 um nokkurra ára skeið við að talsetja teiknimyndir , stjórna þáttum
og semja barnaefni. Hún hefur einnig kennt leiklist á fjölmörgum námskeiðum á
Akureyri, Reykjavík og víða um land. Má nefna að Leikklúbburinn Saga var stofnaður
fyrir 26 árum eftir slíkt námskeið og heitir í höfuðið á leikkonunni. Þá hefur
Saga starfað að markaðs-og sölumálum hjá Leikfélagi Reykjavíkur og LA. Saga hefur
leikstýrt fjölda sýninga bæði heima og erlendis en hún hefur sett upp sýningar
bæði í Lúxemburg og í Færeyjum, meðal sýninga eru Þrek og tár, Káinn, Gleðigjafarnir
ofl. Hér hefur hún meðal annarra hlutverka leikið í Glerdýrunum, Afbragð annarra
kvenna, Skækjunni Rósu, Ingu í Blessuðu barnaláni, Konuna í Leyndarmáli Rósanna.
Setti upp sýningarnar, Ingimar Eydal í 25 ár, Jón Sigurðsson í 30 ár, dagskrá
um Kjartan Ragnarsson og verk hans, dagskrá um Jónas Árnason og verk hans. foreldraskemmtun í Ölduselsskóla, skemmtidagskrá
hjá Kvenfél. Bessastaðahrepps og margt fl. Kennari á námskeiðum hjá eftirtöldum
aðilum: Leikf. Dalvíkur, Leikf. Skagastrandar, Leikf. Sauðárkróks, Leikf. Kelduhverfis,
Kvenf. Bessastaðahr. Leikklúbbnum Sögu, Leikf. Hornafjarðar, Leikf. Garðabæjar,
grunnskólum og framhaldsskólum. Menntaskólanum á Akureyri, Sönglist og hjá Akureyrarbæ
í grunnskólum. Setti upp smásýningu í Lundaskóla vegna 30 ára afmælis skólans. |