JÆja þá eru komnar 12 uppseldar sýningar á STundum og stundum ekki og er mikið
fjör á Melum. Á fimmtudagskvöldið síðasta var sýning til minningar um Hólmfríði
mömmu Benna sem leikur aðalhlutverkið og rann ágóðinn af sýningunni til Krabbameinsfélags
Akureyrar 250.000,- kr. Glæsilegt hjá Leikfélaginu. Helgi Páll minn yngsti varð
íslandsmeistari í íshokký í gær með skautafélagi Reykjavíkur. Flott hjá þeim,
það var spennandi leikur hér á laugardaginn sem þeir að vísu töpuðu en svo í gær
var úrslitaleikurinn. Ég var komin í vorstellingar fyrir viku síðan en svo kom
bara stórhríð og kuldi. Núna er þó sól en mikill snjór. Þarf að fara að komast
í Kotið mitt.
Til baka |