Jæja þá erum við loksins komin í netsamband, það tók aldeilis tímann sinn. Hér
er fínt að vera, íbúðin lítil en ágæt og á besta stað. Það er gaman að hafa hér
allt við hendina og ekki skemmir að veðrið hefur verið með besta móti. Við höfum
gengið mikið og einnig farið á bílnum, t.d. til Svendborg, Assens, Bogense og
Kerteminde. Allt eru þetta fallegir staðir. Við höfum farið mikið á markaði að
kaupa húsgögn og dót. Það eina sem við erum í vandræðum með er bílastæði, höfum
verið á gestastæði allan tímann en verðum að finna eitthvað annað fljótlega.
Til baka |