| JÆja þá er komið enn eitt árið, við eyddum áramótunum í Hrísey með dóttur Skara 
og fjölsk. Það var mjög ánægjulegt. En í gær 1. jan. lést mágur minn í bílslysi 
Árni Veigar Steingrímsson. Hann var á leið í Engihlíð að hitta fólkið sitt þegar 
slysið varð og lést hann samstundis. Kona sem var í hinum bílnum slasaðist sem 
betur fór lítið en auðvitað er þetta mikið áfall að lenda í svona. Nú erum við 
að fara á Hamar, halda uppá sjö ára samveru!! Æfingar hefjast að fullu á morgun 
á Stundum og stundum ekki. Ég átti von á að fara aftur til Færeyja að æfa upp 
Emil en ekkert heyrt frá þeim. Einhver peningavandræði eru þetta var svo dýr sýning 
en vonandi gengur þetta allt saman upp.  
 Til baka
 |